Um NIKK
NIKK – Norræna kvenna- og kynjarannsóknastofnunin er samnorræn þekkingar- og upplýsingamiðstöð. NIKK er til húsa í Óslóarháskóla
og er fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni (NMR).
Hlutverk NIKK er að samhæfa norrænar kynjafræðirannsóknir og stefnumótun í jafnréttismálum.
Starfsemi NIKK fer fram í samráði við norrænu jafnréttismálaráðherrana (MR-JÄM) og embættismannanefndina á sviði jafnréttismála
(ÄK-JÄM).
NIKK starfar náið með þeirri ríkisstjórn sem gegnir formennsku í norrænu samstarfi hverju sinni með það að leiðarljósi að
lifandi og virk norræn stefna í jafnréttismálum byggi á traustum grunni.
NIKK tekur þátt í framkvæmd norrænnar samstarfsáætlunar í jafnréttismálum: „Með áherslu á kyn er stefnt að jafnréttisþjóðfélagi
(2006-2010)“. Read more












