Um NIKK

NIKK – Norræna kvenna- og kynjarannsóknastofnunin er samnorræn þekkingar- og upplýsingamiðstöð. NIKK er til húsa í Óslóarháskóla og er fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni (NMR).

Hlutverk NIKK er að samhæfa norrænar kynjafræðirannsóknir og stefnumótun í jafnréttismálum.

Starfsemi NIKK fer fram í samráði við norrænu jafnréttismálaráðherrana (MR-JÄM) og embættismannanefndina á sviði jafnréttismála (ÄK-JÄM).

NIKK starfar náið með þeirri ríkisstjórn sem gegnir formennsku í norrænu samstarfi hverju sinni með það að leiðarljósi að lifandi og virk norræn stefna í jafnréttismálum byggi á traustum grunni.

NIKK tekur þátt í framkvæmd norrænnar samstarfsáætlunar í jafnréttismálum: „Með áherslu á kyn er stefnt að jafnréttisþjóðfélagi (2006-2010)“. Read more