Algengar spurningar


Hvað þýðir NIKK?

NIKK er skammstöfun á Nordisk institutt for kunnskap om kjønn (Norræna kvenna- og kynjarannsóknastofnunin) en hún er mikilvægasti þekkingarbrunnur Norrænu ráðherranefndarinnar við framkvæmd samstarfsáætlunar í jafnréttismálum.

Hver fjármagnar NIKK?
Norræna ráðherranefndin er helsti fjármögnunaraðili NIKK. Háskólinn í Ósló leggur stofnuninni til aðstöðu. Til þess að fjármagna verkefni sækir NIKK um styrki hjá ýmsum aðilum, bæði í ríkjunum sjálfum og á norrænum og alþjóðlegum vettvangi.

Hver starfar hjá NIKK?
Starfsfólk NIKK er ráðið tímabundið á norrænum samningi og kemur frá ýmsum löndum.

* Upplýsingar um starfsfólk og netföng (á ensku)

Geta fræðimenn, verkefni oþh. sótt um styrki hjá NIKK?
Nei, NIKK er ekki fjármögnunaraðili enda er stofnunin háð fjármögnun annarra aðila til þess að geta hrint af stað verkefnum og stærri viðburðum. NIKK tekur á móti gestafræðimönnum til tímabundinnar dvalar en þeir þurfa sjálfir að tryggja sér fjármögnun á dvöl sinni þar. Sjá yfirlit yfir norræna styrki á vefsíðu Norrænu ráðherranefndarinnar. Alþjóðadeildir háskólanna eru oft með yfirlit yfir styrki sem hægt er að sækja um til þess að fjármagna dvöl erlendis.

Hvað heitir NIKK á hinum tungumálunum?
Nordisk institut for kundskab om køn (DK), Nordic Gender Institute (enska), Pohjoismainen tasa-arvotiedon keskus (FI), Nordisk institutt for kunnskap om kjønn (NO), Nordiskt institut för kunskap om kön (SE).

Hverjar eru starfsreglur NIKK?
Starfsreglur NIKK voru síðast endurskoðaðar af Norrænu ráðherranefndinni árið 2000. Starfssemi NIKK ákvarðast af starfsreglum sem staðfestar eru í samningi NIKK við Norrænu ráðherranefndina, umboði stjórnar, starfsáætlun hverju sinni og fjárhagsáætlun.

* Starfsreglur NIKK (pdf) (á sænsku)

Getur NIKK aðstoðað við að finna fræðimenn og sérfræðinga?
NIKK býr yfir ágætri yfirsýn yfir rannsóknir á Norðurlöndunum. Við hvetjum fólk til að leita í sérfræðingagrunnum sem til eru á sviði kvenna-, karla- og kynjafræða. Ef leitað er eftir einstaklingi frá tilteknu landi er yfirleitt hentugast að snúa sér til aðila sem hafa umsjón með málaflokknum í viðkomandi landi.

Yfirumsjón kvenna-, karla- og kynjafræðirannsókna á Norðurlöndum (á ensku)

Önnur mikilvæg skjöl
Áætlun og starfsreglur NIKK (pdf)
(á dönsku, norsku og sænsku)
Tveggja ára samningur NIKK við Norræna ráðherranefndina fyrir tíma ilið 2008-2010 byggist á þessum skjölum.