Um nikk.no


nikk.no birtir nýjustu upplýsingar og fréttir af kynjarannsóknum og jafnréttismálum á Norðurlöndunum.

Efnið á nikk.no skiptist í flokka eftir verkefnum NIKK. Í hverjum efnisflokki er að finna kynningartexta ásamt fréttum, greinum, rannsóknaniðurstöðum og útgefnu efni um verkefnin.

Tungumál
Megininnihald nikk.no er ýmist á dönsku, norsku eða sænsku auk ensku. Þá verða stuttir kynningartextar um NIKK á finnsku og íslensku á vefnum. Sumt efni á vefnum verður annað hvort á einu skandinavísku tungumálanna eða ensku. Efni á finnsku og íslensku ræðst af því hvaða efni hefur verið gefið út á þessum tungumálum á vegum verkefna NIKK.

Samstarfsaðilar
nikk.no starfar náið með kynjarannsóknastofnunum ríkjanna að upplýsingamiðlun, KILDEN (Noregi), Nationella Sekretariatet för Genusforskning (Svíþjóð), KVINFO (Danmörku) og MINNA (Finnlandi) auk upplýsingavefjar Norrænu ráðherranefndarinnar um jafnréttisstarf á Norðurlöndunum norden.org/gender

Höfundarréttur
© NIKK – Nordisk institutt for kunnskap om kjønn 2008. Efni á vefnum er verndað af ákvæðum höfundalaga. Efnið er gefið út til lesturs í rafrænu formi. Sé ekki samið um annað við NIKK er önnur fjölföldun eða útgáfa efnisins eingöngu heimil í samræmi við lög eða samninga við Kopinor, hagsmunasamtök rétthafa. Notkun sem brýtur í bága við lög eða gerða samninga getur verið skaðabótaskyld og varðað sektum eða fangelsisvist.

Ritstjórn
Útgefandi og ábyrgðarmaður nikk.no er Solveig Bergman forstöðumaður NIKK

Rikke Randorff Hegnhøj vefstjóri hefur daglega umsjón með nikk.no.

Hafið vinsamlegast samband ef þið hafið athugasemdir við innihald nikk.no.