NIKK tekur frumkvæði að, samhæfir og framkvæmir verkefni sem varpa ljósi á mikilvæg málefni er varða jafnrétti og kyn auk
þess sem NIKK á hlut í að tryggja gæði pólitískrar umræðu og aðgerða. Verkefnin varða rannsóknir, yfirlit, skýrslur, rannsóknaverkefni
o.fl. sem taka mið af samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar í jafnréttismálum. Rannsóknir á vegum NIKK eru yfirleitt
skipulagðar sem norræn samstarfsverkefni og eru fjármögnuð af öðrum aðilum.



